Song: Kósýkvöld í kvöld
Artist:  Baggaltur
Year: 2008
Viewed: 50 - Published at: 7 years ago

Skelfing er ég leiður á því að húka hér
Ég hugsa að þú þurfir einhvern að strjúka þér
Ég þrái það að komast klakklaust heim á ný
Æ, komdu við í ríkinu – ekki gleyma því
Ég ætla að byrja á því að demba mér í
Furunála freyðibað
En ekki fara eitthvað að dúlla þér þar
Þú veist mér leiðist það
- þá kemst ég aldrei að
Sæktu sloppana, ég skal poppa
Það er kósýkvöld í kvöld
- Vídeó, rauðvín og ostar
Sötrum rósavín, deyfum ljósin
Það er kósýkvöld í kvöld
- Rólegheit, hvað sem það kostar
Algert óhóf, spennulosun og spilling blind
Sparistellið, franskar vöfflur – og hryllingsmynd
Mér áskotnuðust vindlar, við skulum púa þá
Ég væri til í pottinn, nennirðu að skrúfa frá?
Meðan við kúrum saman tveir fær enginn
Máttur skilið okkur að
Æ, viltu auka leti mína og sækja
Pínu meira sjokkólað?
- Og eitthvað útí það?
Svæfðu krakkana, sæktu snakkið
Það er kósýkvöld í kvöld
- Kavíar, rauðvín og ostar
Sæktu flísteppið og rjómaísinn
Það er kósýkvöld í kvöld
- Dejlighed, hvað sem það kostar
Smelltu límonaði í sódastrímið
Það er kósýkvöld í kvöld
- Kamparíís, kex og ostar
Skеlltu Donóvan á grammófóninn
Það er kósýkvöld í kvöld
- Kærlighed, hvað sem það kostar
Fáðu þér vinur minn, dass af gini
Það еr kósýkvöld í kvöld
- Smávindlar, trúnó og ostar
Ég var að hugsum, að fara úr buxum
Það er kósýkvöld í kvöld

( Baggaltur )
www.ChordsAZ.com

TAGS :