Song: Calliope baðar brjóstin á sér
Artist:  Kef LAVK
Year: 2021
Viewed: 44 - Published at: 5 years ago

Þórir sf-77, vor 2020

Puff, puff, puff

Þú ert gyðju líkust ofan í ánni (Puff, puff, puff)
Calliope baðar brjóstin á sér (Puff, puff, puff)
Brauðfætur við það að horfa á þig (Puff, puff, puff)
Meðan ég fer úr og dýfi tánni í

Ég stari á þig í smásjá
Ég sé allar sameindirnar verka hverja aðra
Frumurnar að endurnýjast
Tilfinningarnar sem þú kýst að segja engum frá
Leynast allar þar, dýpstu fylgsnin
(ef að ég má sjá þau)

Ég horfi á þig í stækkunarglerinu (en þú ert enn þá lítil)
Fötum fækkar í tjaldinu
Núna get ég séð hvað þú ert hrædd við að sýna öðrum
Baby það er kannski allt í lagi bara að hræðast suma hluti
Erum ekki fullkomin þótt þú viljir virðast það á netinu
Ég held um þig til að reyna sýna þér að allt sem þú ert feimnust við hefur engin áhrif á mig
Gríptu bara fast um mig ef þú skilur boðskapinn
(Puff, puff, puff)

Þú ert gyðju líkust ofan í ánni (Puff, puff, puff)
Calliope baðar brjóstin á sér (Puff, puff, puff)
Brauðfætur við það að horfa á þig (Puff, puff, puff)
Meðan ég fer úr og dýfi tánni í

Nætur líða hratt með þér ofan í þessum kafbát
Nætur líða hratt með þér ofan í þessum kafbát
Nætur líða hratt með þér ofan í þessum kafbát
Nætur líða hratt með þér ofan í þessum kafbát

Horfi á þig í sjónauka
Hárið þitt еr blautt og liðast niður
Brjóstin varlega (minnir mig á regnvatn renna niður
Ytri rúðuna á haustin)
Og ég fatta að ég sé stundum еkki einmana
Þótt ég vilji meina það

Fór að hugsa um endinn á paradísarmissi
Þegar Michael segir Adam að leita að henni innra við
Ég held að það sé dagssatt
Við þurfum enga guði til að byggja samastaði ef við gerum þá í hausnum
(Puff, puff, puff)
Þú ert gyðju líkust ofan í ánni (Puff, puff, puff)
Calliope baðar brjóstin á sér (Puff, puff, puff)
Brauðfætur við það að horfa á þig (Puff, puff, puff)
Meðan ég fer úr og dýfi tánni í

Nætur líða hratt með þér
Nætur líða hratt með þér
Nætur líða hratt með þér ofan í þessum kafbát
Nætur líða hratt með þér
Nætur líða hratt með þér
Nætur líða hratt með þér ofan í þessum

Nætur líða hratt með þér
Hratt með þér

( Kef LAVK )
www.ChordsAZ.com

TAGS :